Hugmynd kviknar af hugmynd - Hádegisfundur kennsluráðs

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. febrúar 2010 - 11:40 to 12:20
Eitt af hlutverkum kennsluráðs er að hvetja til almennrar umræðu um nám og kennslu á sviðinu. Í því skyni gengst kennsluráð fyrir óformlegum hádegisfundum, þar sem menn spjalla, borða nestið sitt og ræða sértæk málefni um nám og kennslu.
Í ljósi ákvörðunar sviðsstjórnar um að kenna í auknum mæli saman námskeið sem til þessa hafa annars vegar verið kennd í staðnámi og hins vegar í fjarnámi hefur kennsluráð ákveðið að nestisfundir á vormisseri verði helgaðir samkennslu námskeiða í stað- og fjarnámi.

Slíkir spjallfundir eru áætlaðir fjóra þriðjudaga fram á vorið, þ.e. 2. febrúar, 2. mars, 30. mars og 27. apríl.

Framsögumenn úr hópi kennara koma með dæmi sem gefist hafa vel um sveigjanlega kennsluhætti og síðan verða almennar umræður.

Frummælendur verða:
02. febrúar        Halla Jónsdóttir aðjúnkt og Kristín Jónsdóttir lektor: Samkennsla 30 staðnema og 50 fjarnema í námskeiðinu Nám og kennsla unglinga

02. mars           Þorvaldur Pálmason verkefnisstjóri: Þjónusta Menntasmiðju við þróun sveigjanlegra kennsluhátta

30. mars           Hrefna Sigurjónsdóttir prófessor: Fjölbreyttir kennsluhættir á námskeiðinu Undur lífsins

27. apríl            Sigrún Guðmundsdóttir lektor: Hugmyndavinna og textíll, samkennsla stað- og fjarnema

Fundirnir verða frá kl. 11.40–12.20 í stofu K-205.

Kennsluráð vonar að þið fjölmennið og takið virkan þátt í umræðum um sveigjanlega kennsluhætti.
deila á facebook