Hugleiðing um heilann

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. nóvember 2009 - 12:25 to 13:15

Nicolas Pétur Blin heldur fyrirlestur 4. nóvember sem ber heitið ´Hugleiðingar um heilann´ í Odda (stofu 201) kl. 12:25-13:15 á vegum námsbrautar í safnafræði við Háskóla Íslands.

Í erindinu verður stiklað á stóru um starfsemi heilans og verða skoðaðar nokkrar rannsóknir sem reyna að varpa ljósi á misflókin ferli og taugabrautir sem höndla upplýsingar frá innra og ytra umhverfi mannsins. En rannsóknir um heilann hafa verið hluti af uppsetningu leikhúsverksins Hnykils og frumsýnt verður 6. nóvember næstkomandi.

Nicolas Pétur Blin er MA í Taugalífeðslisfræði starfandi hjá Mentis Cura ehf . Mentis Cura þróar greiningartækni á heilakvillum með aðstoð gagnagrunns á heilaritum heilbrigðra og heilabilaða einstaklinga.

Um verkefnið Hnykill:

Hnykill er íslenska heitið á litla heila eða celeberum. Heilinn er eins konar safn upplýsinga og minninga. Safnið er tákn fyrir eilifa þekkingarleit mannsins. Með þekkingarleit sinni reynir manneskjan að sjá samhelgi í lífi sínu og finna svör við þeim ótal spurningum sem vakna á lífsleiðinni. Við þekkjum söfn á borð við byggðasöfn og þjóðminjasöfn, náttúrusöfn og söfn hluta sem eru sett á ákveðið samhengi, samhengi sem varpar ljósi á fortíðina og hjálpar okkur um leið að sjá hvert við stefnum.

En safnið getur einnig táknað okkur sjálf. Á lífsleiðinni safnar manneskjan að sér hlutum og hugmyndum og kemur þeim fyrir a safni sem við köllum fortíð. Fortíðin er ekki heilsteypt safn heldur minnir frekar á gloppótt minni ellihrums gamalmennis Á þessu safni verða hlutir að furðuhlutum, því þegar þeir fara út sínu fyrra samhengi og náttúrulegu umhverfi fá þeir aðra og nýja merkingu. Manneskjan er sitt eigið safn, safn þekkingar og upplýsinga sem hún hýsir á mismunandi stöðum í líkamanum. Þrátt fyrir eilífa þekkingarleit mannsins hefur honum ekki tekist að finna lykilinn að lífinu. Á þessu safni ótrúlegra hluta, furðuhluta, mun sýningin "Hnykill" reyna , með ítarlegri rannsóknarvinnu, að varpa ljósi á svör við spurningum á borð við: Hver er ég ? Hvert stefni ég? Hver er tilgangur minn?

deila á facebook