Hvenær hefst þessi viðburður:
10. febrúar 2012 - 13:00

Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema verður haldin í Háskólabíói, kl.13:00, þann 10. febrúar 2012. Búast má við hörkuspennandi keppni en alls hafa 10 lið skráð sig til leiks.
Nemendur í véla- og iðnaðarverkfræði sjá um undirbúning og framkvæmd. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Allt um keppnina má sjá á http://www.velnem.hi.is/honnunarkeppni/
