
Málþing um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá lýðveldisins
Nýlega lauk stjórnlagaráð við gerð tillagna að nýrri stjórnarskrá. Hafa þær verið afhentar Alþingi. Tillögurnar gera ráð fyrir umfangsmiklum breytingum á núverandi stjórnarskrá. Af því tilefni hafa lagadeildir Háskólanna á Akureyri, á Bifröst, í Reykjavík og Háskóla Íslands ákveðið að standa sameiginlega að fjórum málstofum um tillögur stjórnlagaráðs. Málstofurnar verða haldnar föstudagana 21. október, 4. nóvember, 11. nóvember og 18. nóvember nk.
Háskóli Íslands
Föstudaginn 4. nóvember, kl. 12:00-13:45
Hlutverk forseta Íslands í tillögum stjórnlagaráðs
Frummælandi: Björg Thorarensen
Pallborð: Ágúst Þór Árnason, Eiríkur Bergmann Einarsson og Sigurður Líndal
