
Sigurður Ingvarsson forstöðumaður
Heiti erindis: Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði 2009: Litningaendar og telómerasi.
Erindið verður haldið fimmtudaginn 19. nóvember 2009, kl. 12:20 á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Nóbelsverðlaunin í líf- og læknisfræði 2009 skiptust jafnt á milli Elizabeth H. Blackburn (University of California, San Francisco), Carol W. Greider (John Hopkins University School of Medicine, Baltimore) og Jack W. Szostak (Harvard Medical School Boston; Howard Hughes Medical Institute). Verðlaunin voru veitt fyrir uppgötvun á byggingu og starfsemi litningaenda og ensímsins telómerasa. Fyrstu niðurstöður byggðu á notkun einfrumungs í rannsóknunum og síðar kom í ljós að viðkomandi kerfi eru varðveitt í þróun fjölfrumunga.
Niðurstöður verðlaunahafanna leystu m.a. tvö vandamál líffræðinnar sem tengjast því að litningar eru línulegar sameindir, þ.e. hvernig litningar eru varðir fyrir niðurbroti og hvernig eftirmyndun á litningaendum á sér stað. Endurtekning á DNA-röð litningaenda er lykilatriði í starfi þeirra. Ensímið telómerasi er sérstakt að því leyti að það inniheldur bæði RNA sameind og próteinsameindir. Virkni þess flokkast sem víxlritavirkni, því notað er RNA mót til að byggja nýtt DNA. Í erindinu verður farið yfir helsu tímamótaskref í rannsóknunum, fjallað verður almennt um byggingu og starf litningaenda og telómerasa og mikilvægi þessarar nýju þekkingar varðandi skilning og meðferð á sjúkdómum.
