Heildarhönnun bygginga með tilliti til sjálfbærni

Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. september 2010 - 12:10

Heildarhönnun bygginga með tilliti til sjálfærni

Jón Kristinsson arkitekt

Umræða um sjálfbærni er ofarlega á baugi þessa dagana. Mikilvægi bættrar orkunýtingar er liður í þá veru. Á köldum svæðum hérlendis er raforka notuð til húshitunar, rétt um 10% landsmanna býr á þessum svæðum. Með hækkandi orkuverði verður þessi málaflokkur æ mikilvægar.  Jón Kristinsson arkitekt hefur um áratguaskeið unnið við að bæta orkunýtingu við hitun og kælingu húsa og beitt til þess nýstárlegum aðferðum. Hann hefur náð umtalsverðum árangri á sínu sviði og haldið fyrirlestra víða um heim. Árið 1998 fékk hann Royal Dutch Shell verðlaunin fyrir sjálbærni í arkitektúr.

Jón Kristinsson var prófessor í arkitektúr og byggingaverkfræði við Tækniháskólann í Delft frá 1992-2001. Um áratugaskeið ráku hann og eiginkona hans einnig arkitektastofu í Deventer í Hollandi.

deila á facebook