Skip to main content

Háskóladagurinn 2017 - Opið hús í Háskóla Íslands

Hvenær 
4. mars 2017 12:00 til 16:00
Hvar 

Annað

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands býður landsmönnum öllum í heimsókn laugardaginn 4. mars 2017 milli klukkan 12 og 16 þar sem í boði verða ótal viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna nýsköpun og vísindi í litríku og lifandi ljósi.

400 námsleiðir í boði

Allir geta kynnt sér fjölbreytt námsframboð Háskóla Íslands en yfir 400 námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi eru í boði við skólann. Þá fer einnig fram kynning á margþættri og spennandi starfsemi og þjónustu. Gestir geta skoðað rannsóknastofur, tæki, búnað og húsakynni.

Á staðnum verða vísindamenn, kennarar og nemendur úr öllum deildum háskólans sem svara spurningum um allt milli himins og jarðar – eða því sem næst.

Öll fræðasvið með kynningu á Háskólasvæðinu

Dagskráin er mjög fjölskrúðug en á meðal þess sem boðið verður upp á er Vísindabíó, dans, lifandi tónlist, Vísindasmiðja, Sprengjugengið, Háskólakórinn, lifandi vísindamiðlun og margt fleira.

tómir stólar við Aðalbyggingu_web.jp