Hafa auglýsingar neikvæð áhrif á börn?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Hafa auglýsingar neikvæð áhrif á börn?

Öðru hverju koma fram kröfur um að stjórnvöld þrengi að auglýsendum hvað varðar auglýsingar sem beint er að börnum. Yfirleitt eru þessar kröfur byggðar á því að börn skilji ekki tilgang auglýsinga, þau geti ekki gert greinarmun á þeim og dagskrárefni eða þá að auglýsingar hafi neikvæð áhrif á þau. Í fyrirlestrinum verður farið yfir niðurstöður helstu rannsókna sem birtar hafa verið á áhrifum auglýsinga á börn.

Friðrik Eysteinsson er aðjúnkt í markaðsfræði við viðskiptafræðideild H.Í. Hann lauk MBA námi frá University of Minnesota 1988, hefur gegnt starfi markaðs- og sölustjóra hjá bæði Vífilfelli og Sláturfélagi Suðurlands og kennt við TÍ/THÍ, VHB og HA.

Fyrirlesturinn er öllum opinn.

deila á facebook