
Hátíðarmálþing Orators, félags laganema, verður haldið á hátíðardegi félagsins 16. febrúar 2010. Málþingið er tileinkað 90 ára starfsafmæli Hæstaréttar Íslands.
Frummælendur á málþinginu verða:
Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti Hæstaréttar: Ávarp í tilefni 90 ára afmælis Hæstaréttar.
Ragna Árnadóttir, dóms- og mannréttindaráðherra: Skipan dómara og nýtt frumvarp þess efnis.
Jakob R. Möller, hæstaréttarlögmaður: Stormur tíðarinnar: Hæstiréttur og samfélagið.
Fundarstjóri verður Hjalti Geir Erlendsson, stud.jur, funda- og menningarmálastjóri Orators.
Málþingið hefst kl. 13:00 og stendur til 15:30 í hátíðarsal Háskóla Íslands (aðalbygging).
Aðgangur er ókeypis og að erindum loknum verður boðið upp á léttar veitingar.
