Guðmundur Jónsson: Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi

Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Guðmundur Jónsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, flytur erindið Velferðarríkið og efnahagskreppur á Íslandi þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12.05 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Erindið er hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins sem ber yfirskriftina Hvað er kreppa?

Í lýsingu á erindinu segir

Ísland er hvikult land ekki aðeins í jarðfræðilegum skilningi heldur einnig efnahagslegum. Hér hafa hagsveiflur verið tíðari og öfgafyllri en í flestum ríkjum Evrópu amk. síðan á 19. öld og hafa þær oft leitt til snöggra breytinga á lífskjörum almennings.

Í erindinu er leitast við að svara þeirri spurningu hvaða afleiðingar þessi efnahagslegi óstöðugleiki hefur haft á þróun velferðarríkisins á Íslandi. Sumir fræðimenn halda því fram að lönd með opin hagkerfi búi við meiri óstöðugleika en önnur og hafi því almenningur þrýst á stjórnvöld um að koma á sterku félagslegu öryggisneti. Þannig megi skýra hin öflugu velferðarríki Norðurlanda. Ætli þessi kenning eigi við um Ísland? Eða hefur óstöðugleikinn verið svo mikill á Íslandi að hann hafi leitt til hins gagnstæða: hindrað að hér festist í sessi jafnvíðtækt velferðarkerfi og annars staðar á Norðurlöndum – velferðarkerfi sem byggist á almennum félagslegum og efnahagslegum réttindum?

deila á facebook