Green with a vengence - Igniting a revolution

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. nóvember 2009 - 19:30 to 21:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Næstkomandi þriðjudag 3.nóvember mun Öskra! beina athyglinni að róttækri umhverfisvernd og baráttunni fyrir verndun náttúrunnar.

Sýndar verða tvær stuttar myndir sem fylgt verður eftir með umræðum:

Green with a vengence:

Jeffrey “Free” Luers er pólitískur fangi í Bandaríkjunum sem hlaut vægðarlausan dóm fyrir aðgerðir sínar gegn rótum umhverfis- og náttúrueyðileggingar Yfirvöld vilja bendla hann við Earth Liberation Front (ELF) en mikið kapp er lagt á að koma böndum á hreyfinguna og berja niður hugmyndir hennar.

Igniting the Revolution- An Introduction to the E.L.F:

Fjallar um róttæku umhverfishreyfinguna Earth Liberation Front (ELF) og hugmyndafræðina á bak við aðgerðir hennar. Brennandi af reiði vegna okkar deyjandi plánetu berst ELF gegn þeim öflum sem sjá gróðavon í rústun vistkerfa.

Eftir sýningu verða umræður um umhverfishreyfinguna, aðferðir hennar og stefnu.

Háskóla Íslands

Þriðjudaginn 3.nóv

Oddi. stofa 101

kl. 19:30

deila á facebook