
Miðvikudaginn 8. febrúar flytur Ásdís Egilsdóttir áttunda hádegiserindið í röðinni Góssið hans Árna í tilefni upptöku handritasafnsins á varðveisluskrá UNESCO ,,Minni heimsins". Erindi Ásdísar nefnist: Handrit handa konum: AM 431 12mo.
Handritið AM 431 12mo er skinnhandrit, aðeins 119 x 90 mm að stærð. Það geymir Margrétar sögu sem er þýdd saga um píslarvottinn hl. Margréti. Í handritinu er einnig að finna bænir og töfraformúlur sem taldar voru koma að gagni við barnsburð. Hl. Margrét var verndardýrlingur kvenna í barnsnauð. Heitið var á Margréti við barnsfæðingar og svo virðist sem bókin eða hluti hennar hafi verið lögð hjá konum í barnsnauð í því skyni að auðvelda fæðinguna. Fleiri handrit í litlu broti með Margrétar sögu og skyldu efni hafa varðveist og væntanlega verið notuð á sama hátt og AM 431 12mo.
Erindið hefst kl. 12.15 á bókasal Þjóðmenningarhússins og stendur í um hálfa klukkustund. Handritið verður til sýnis á staðnum. Allir eru velkomnir.
Góssið hans Árna verður á dagskrá annan hvern miðvikudag í allan vetur og lýkur síðasta vetrardag, 18. apríl.
