
Landspítalinn við Hringbraut er lýstur upp í rauðum lit ásamt Aðalbyggingu Háskóla Íslands til að minna á forvarnir hjá konum vegna hjarta- og æðasjúkdóma.Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annarsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga má úr líkum á þessum sjúkdómunum. GoRed átakið er alheimsátak á vegum World Heart Federation. Verndari átaksins hér á landi er Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra.
GoRed dagurinn verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík og Akureyri næstkomandi sunnudag þann 21. febrúar.
Reykjavík: Aðalbygging Háskóla Íslands
Dagskráin stendur frá 13:30 og lýkur 15:00
Meðal atriða:
- Léttsveit Reykjavíkur flytur ljúfa tóna
- Kristín Ingólfsdóttur rektor HÍ, fundarstjóri
- Vilborg Sigurðardóttir læknir, formaður GoRed.
- Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
- Axel Sigurðsson hjartasérfræðingur.
- Ingibjörg Pálmadóttir verndari Go Red.
Kynningar, gjafir og fræðsla ásamt tískusýningu frá Karen Millen og DAY
