Get Rid of Yourself

Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. mars 2010 - 19:30 to 21:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Þriðjudaginn 16.mars er það myndin Get Rid of Yourself

Innsýn inn í stofnanalausa andstöðu án persónueinkenna sem hafnar ríkjandi stjórnmálum. Án þess að einblína á forritaða tímaröð atburða og átaka eru óeirðirnar í Genoa 2001 notaðar sem bakgrunnur til að skapa sýn inn í sameiginlega upplifun á aðgerðum, hugsunum og rými. Útfrá aðferðum svartblokkarinnar (The Black Bloc) og orðum hinna nafnlausu lýsir myndin yfir eigin útlegð úr pólitísku rófi. Þetta eru stjórnmál án viðfangsefnis.

deila á facebook