Gæði umönnunar, þróun á heilsufari, færni og lifun á íslenskum hjúkrunarheimilum á árunum 1996-2009

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. mars 2012 - 15:00

Dr. Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúkrunarfræðingur, flytur opinberan fyrirlestur á vegum Hjúkrunarfræðideildar föstudaginn 2. mars. Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni doktorsvarnar Ingibjargar og verður í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 15:00-16:00. Fyrirlesturinn nefnist Gæði umönnunar, þróun á heilsufari, færi og lifun á íslenskum hjúkrunarheimilum á árunum 1996-2009.

Meginmarkmið doktorsverkefnisins var að kanna heilsufar, færni og spáþætti fyrir andláti hjá íbúum á íslenskum hjúkrunarheimilum yfir ákveðið tímabil. Auk þess að ákvarða efri og neðri gæðaviðmið fyrir Resident Assessment Instrument (RAI) gæðavísa, kanna algengi gæðavísa á ákveðnum tímabilum og tengsl þeirra við heilsufar og færni íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum. Niðurstöðurnar sýndu að vitræn færni íbúa sem nýlega höfðu flutt á hjúkrunarheimili hvert ár varð betri en heilsufar varð óstöðugra yfir tímabilið 1996-2006. Stöðugleiki heilsufars og færni í athöfnum daglegs lífs reyndust vera mikilvægir spáþættir fyrir andlát. Sett voru fram gæðaviðmið fyrir íslensk hjúkrunarheimili og útkoma RAI gæðavísa íslenskra hjúkrunarheimila bornar saman við þau. Þróun RAI gæðavísa var einnig skoðuð yfir 11 ára tímabil 1999-2009. Hlutfall íbúa sem voru með ákveðna gæðavísa hækkaði marktækt í 17 RAI gæðavísum af 20, sem er vísbending um minnkandi gæði á hjúkrunarheimilunum yfir tímabilið. Þessa aukningu í gæðavísum var þó í ákveðnum tilfellum hægt að tengja við heilsufar íbúanna. Sú umönnun og meðferð sem hjúkrunarheimili á Íslandi þurfa að leggja áherslu á að bæta er greining þunglyndis, lyfjameðferð við þunglyndi og hjúkrun íbúa með einkenni þunglyndis. Lyfjameðferð íbúa þarf að endurskoða m.t.t. gagnreyndrar meðferðar og fjöllyfjameðferðar. Enn fremur þarf að endurskoða virkni og afþreyingu íbúa og þá sérstaklega m.t.t. íbúa sem eru með skerta vitræna getu og skerta færni.

Upplýsingar um gæði sem safnað er yfir lengri tímabil sýna í hvaða átt þjónustan hefur þróast og því er mikilvægt að hjúkrunarheimilin og opinberir aðilar bregðist við þeim niðurstöðum sem fram komu í þessari rannsókn.

deila á facebook