Fyrirlestur: Michael Schulte fjallar um rúnaristuna frá Hogganvik

Hvenær hefst þessi viðburður: 
29. september 2010 - 16:00

Michael Schulte, prófessor við Háskólann í Volda í Noregi, heldur fyrirlesturinn Rúnaristan frá Hogganvík: ný heimild um frumnorrænu á vegum Málvísindastofnunar Háskóla Íslands og Íslenska málfræðifélagsins þann 29. september. Fyrirlesturinn verður í stofu 423 í Árnagarði og hefst kl. 16:00.

Fyrirlesturinn verður fluttur á norsku en fyrirlesari getur svarað spurningum og tekið þátt í umræðum á íslensku.

Rúnaristur frá frumnorrænum tíma eru fáar, stuttorðar og torráðnar. Þess vegna vakti mikla athygli þegar rúnasteinn frá þeim tíma fannst í Hogganvík í Suður-Noregi árið 2009. Þetta er einn merkasti rúnafundur sem um getur frá því að steininn frá Rosseland fannst árið 1947 og er mikilvæg viðbót við þekkingu okkar norrænu á elsta málstigi. Á rúnaristunni frá Hogganvík koma fram fornleg málfarseinkenni sem benda til þess að hún sé frá fyrri hluta 4. aldar e. Kr.  Á steininum er 61 rún og áletrunin er því sú næstlengsta sem til er frá frumnorrænum tíma, en lengsta texta á frumnorrænu er að finna á Tune-steininum fræga, með um það bil 100 rúnum. Hogganvíkursteinninn er „tvíhliða bautasteinn“ (Krause 1966) þar sem bæði hinn dauði og sá sem reisti steininn eru nefndir og auk þess kemur þar fyrir viðurnefni (eða hugsanlega gælunafn). Ristan er ekki síst mikilvæg heimild í nafnfræði því hún hefur að geyma þrjú frumnorræn mannanöfn sem áður voru ókunn. Í fyrirlestrinum verður einnig drepið á það samhengi sem skoða verður Hogganvíkursteininn í og m.a. fjallað um gerð rúnaletursins og svokallaðar dulrúnir (lønnruner) sem sumir fræðimenn telja að sé að finna á ristunni.

---

Michael Schulte er fæddur í Þýskalandi, dvaldi á Íslandi 1986-87 en hefur starfað í Noregi um árabil. Hann er nú prófessor í norrænum málvísindum við háskólann í Volda á Sunnmæri. Sérsvið hans er m.a. norræn og germönsk málsaga og hann hefur skrifað bækur og fjölmargar greinar um það efni, einkum um málið á frumnorrænum rúnaristum.

deila á facebook