Fyrirlestur Konfúsíusarstofnunar: Nýsköpun í Kína í samvinnu við kínversk stjórnvöld

Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Hvernig er að vinna að nýsköpun í Kína í samvinnu við kínversk stjórnvöld?

Jóhann Pétur Malmquist, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands og frumkvöðull.

Um fyrirlesturinn:

Fyrirlesari hefur tekið þátt í að byggja upp alþjóðlegt nýsköpunarfyrirtæki ásamt samstarfsmönnum sínum í Kína. Fyrirtækið heitir Globe Tracker (http://www.globetracker.com/ ) og er skráð í Delaware í Bandaríkjunum, það er með starfsstöðvar í Peking og Reykjavík. Fyrirlesari mun segja frá reynslu sinni af samvinnu við kínversk stjórnvöld og reyna að gera grein fyrir því sem er líkt og ólíkt er með þessum menningarheimum. Hvernið er að byggja upp fyrirtæki í Kína? Fjallað verður um samstarf við stjórnendur ríkisstofnana og ráðuneyta og vikið að starfsmönnum og viðhorfum þeirra til starfsins á löngu þróunarferli.

Um Jóhann: Jóhann er með BS próf í stærðfræði og eðlisfræði og Ph.D. í tölvunarfræði. Jóhann hefur verið kennari við Háskóla Íslands í tæpa þrjá áratugi og tekið þátt í að byggja upp kennslu í tölvunarfræði og uppbyggingu á hugbúnaðariðnaði á Íslandi. Jóhann hefur stofnað á annan tug sprotafyrirtækja í samvinnu við nemendur og aðra. Sum fyrirtækjanna hafa náð árangri eins og Hugvit sem er með GoPro hugbúnaðinn og annað nýtt fyrirtæki sem þróaði gítarstillir í farsíma, en í samvinnu við Nokia hefur hugbúnaðurinn dreifst til yfir 140 landa á síðust 5 mánuðum.

Hvar og hvenær: Lögberg, stofa 201, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12:00 Þetta er áttundi og síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljóss í tilefni 60 ára afmæli Alþýðulýðveldisins Kína 1. október sl. Meðskipuleggjendur eru Kínversk íslenska menningarfélagið og Íslensk kínverska viðskiptaráðið.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og án endurgjalds

deila á facebook