Fyrirlestur Konfúsíusarstofnunar: "Efnahagsumbætur í Kína í 30 ár", Magnús Björnsson

Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Deng Xiaoping, arkitekt efnahagsumbótanna í Kína, líkti þeirri vegferð við mann sem fer yfir á með því að tipla á steinvölum, varfærnislega skref fyrir skref. Þetta hefur ekki alltaf verið auðvelt ferðalag og mikið um tilraunastarfsemi enda verkefnið af þeirri stærðargráðu að vart verður fundin fyrirmynd í mannkynssögunni. Niðurstaðan er þó undraverður árangur í efnahagslegu tilliti.

Í fyrirlestrinum verður farið yfir helstu ástæður þess að breytt var um efnahagskúrs í Kína, saga efnahagsumbóta síðustu 30 ára síðan rakin og í lokin leitast við að meta áhrifin í víðu samhengi.

Magnús Björnsson kom fyrst til Kína árið 1990. Nam kínversku við Beijing Language and Cultural University á árunum 1995-1997 og stundaði meistaranám í alþjóðastjórnmálum við Renmin University í Beijing frá 1997-2000.

deila á facebook