
Efnahagsþróunin í Kína hefur verið einstök í veraldarsögunni, bæði hvað snertir hraða og umfang og hafa Íslendingar ekki farið varhluta af þessari þróun.
Ingjaldur Hannibalsson hefur fylgst náið með þessari framvindu og tekið þátt í uppbyggingu viðskiptatengsla Íslands við Kína nánast frá upphafi. Hann fór fyrst til Kína árið 1986 í hópi viðskiptanefndar í fylgd með Steingrími Hermanssyni en hefur síðan haldið reglulega til landsins til að fylgjast með framvindunni í efnahagslífinu, nú hin seinustu ár með hópa MBA nema í kynnisferðir til Beijing og Shanghai. Ingjaldur mun segja frá reynslu sinni og viðskiptum Kína við Ísland. Ingjaldur Hannibalsson er prófessor og deildarforseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.
Þetta er fimmti fyrirlesturinn af átta sem haldnir verða vikulega í tilefni 60 ára afmælis Alþýðulýðveldisins Kína 1. október sl. Skipuleggjendur eru Konfúsíusarstofnun, Kínversk íslenska menningarfélagið og Íslensk-kínverska viðskiptaráðið.
