Fyrirlestur Konfúsíusarstofnunar: Af samskiptum Íslendinga og Kínverja gegnum tíðina, Ólafur Egilsson

Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Ólafur Egilsson var sendiherra í Beijing 1998 til ársloka 2002 og formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins (KÍM) 2006 til 2009.  Hann mun minnast á múmíur í Vestur-Kína af bláeygðu og ljóshærðu fólki er bent gætu til ferða norræns fólks á þær slóðir áður fyrr, en sem Thor Heyerdahl hefur skýrt með öðrum hætti.  Þá verður stiklað á stóru í samskiptum við Kína síðan Árni Magnússon frá Geitastekk fór þangað á síðari hluta 18. aldar fyrstur Íslendinga svo vitað sé, getið starfs kristniboðanna Ólafs Ólafssonar og Jóhanns Hannessonar, afstöðu kínverskra stjórnvalda til útfærslu fiskveiðilögsögunnar og aðildar Íslands að NATO.  Einkum verður þó farið yfir mjög vaxandi góð samskipti og samstarf þjóðanna eftir stofnun formlegs stjórnmálasambands milli þeirra 1971 og síðan íslenskt sendiráð tók til starfa í Beijing 1995.

Þetta er sjöundi fyrirlesturinn af átta sem haldnir verða vikulega í tilefni 60 ára afmælis Alþýðulýðveldisins Kína 1. október sl. Skipuleggjendur eru Konfúsíusarstofnunin Norðurljós, Kínversk íslenska menningarfélagið og Íslensk-kínverska viðskiptaráðið.

Þann 25. nóvember segir Jóhann Pétur Malmquist frá einstöku rannsóknarsamstarfi sínu með kínverskum stjórnvöldum á sviði samskiptatækni.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og án endurgjalds

deila á facebook