
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar
Fyrirlesturinn fellur niður vegna veikinda
(Klíku)ráðningar hjá ríkinu?
Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi komu fram ýmsar gagnrýnisraddir þess efnis að opinber stjórnsýsla hefði verið illa í stakk búin til að takast á við erfiðar aðstæður. Þessi gagnrýni beindist m.a. að því að embættisveitingar hjá hinu opinbera hafi einkennst af klíkuráðningum (e.nepotism), greiðaráðningum (e. patron-client obligations) og ráðningum sem ganga út á að vinir vina fá stöðu eða embætti (e. cronyism). Í þessari málstofu verður gerð grein fyrir þessari gagnrýni, hugtök skýrð og þau sett í samhengi við aðferðir mannauðsstjórnunar þegar kemur að ráðningum og vali starfsmanna. Gylfi Dalmann Aðalsteinsson er dósent í Viðskiptafræðideild.
