Fyrirlestur á vegum Íslenska málfræðifélagsins: Jóhanna Einarsdóttir, lektor á Menntavísindasviði, ræðir um stam

Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. febrúar 2010 - 16:15

Jóhanna Einarsdóttir: Hvað köllum við stam hjá leikskólabörnum?

Fyrirlestur á vegum Íslenska málfræðifélagsins í stofu 423 í Árnagarði kl. 16:15

Mörg börn á leikskólaaldri eiga það til að hökta eða endurtaka oft sama orðið og sum hökta það mikið að þau stama. Stam leikskólabarna hefur verið mælt á tvenns konar hátt, annars vegar með því að telja allt hökt í tali og hins vegar með því að meta einungis óeðlilegt hökt eða stam. Rannsóknir hafa sýnt að erfitt er ná viðunandi áreiðanleika sama hvor aðferðin er notuð.

Í verkefninu sem hér verður sagt frá voru notaðar tímaþrepsmælingar (5 sek) til að athuga og bera saman mat 10 íslenskra og 10 bandarískra talmeinafræðinga á stami íslenskra barna. Börnin, sem voru níu alls, voru valin úr hópi 20 barna vegna þess að þau sýndu mismunandi einkenni og alvarleika stams. Talmeinafræðingar mátu í tvígang hvert tímaþrep annað hvort sem „stamað“ eða sem „ekki stamað“. Niðurstöður gefa til kynna að mat á stami ungra barna sé almennt ekki bundið tungumálinu en að mikil þörf sé á stöðluðu kerfi til að vinna út frá.

Í fyrirlestrinum verða sýnd dæmi um tímaþrep sem talmeinafræðingarnir voru samála um meta sem stömuð og/eða ekki stömuð. Einnig verða sýnd dæmi um ,,ósammála“ tímaþrep. Ennfremur verður kynnt þjálfunar- og matskerfið SMAAT sem var þróað út frá þessum rannsóknum og áhrif þess á mat leikskólakennara á stami leikskólabarna. Niðurstöður sýndu að leikskólakennarar voru að meðaltali nákvæmir í mati á stami barnanna, jafnvel fyrir þjálfun. Eftir þjálfun skilaði þjálfunarhópurinn hins vegar marktækt nákvæmara mati að meðaltali en samanburðarhópurinn (sem fékk ekki þjálfun).

Jóhanna Einarsdóttir lauk doktorsprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands í janúar 2009. Hún er lektor í í talmeinum, máltöku barna og aðferðafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

deila á facebook