Hvenær hefst þessi viðburður:
11. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Alþjóðamálastofun Háskóla Íslands og fastanefnd Evrópusambandsins gagnvart Íslandi boða til fundar með Vladimir Spidla, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins í atvinnu-, félags- og jafnréttismálum, miðvikudaginn 11. nóvember frá kl. 12 – 13 í fundarsal Þjóðminjasafnsins.
Spidla mun fjalla um aðgerðir Evrópusambandsins í atvinnumálum og hvaða úrræði sambandið ætlar að beita í baráttunni gegn atvinnuleysi.
Fundurinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
