
505. fundur í Vísindafélagi Íslendinga verður haldinn íÞjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu miðvikudaginn 29. september kl. 20. Þá heldur Dr. Úlfar Bragason rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum erindi sem hann nefnir:
„Hann vissa eg alvitrastan og hófsamastan.“ Um frásagnarviðhorf í Sturlungu.
Sturlunga saga er samsteypa svonefndra veraldlegra samtíðarsagna sem segja frá atburðum hér á landi á 12. og 13. öld. Talið er að samsteypan hafi verið sett saman um 1300 en elstu handrit hennar, sem varðveitt eru, munu vera frá síðari hluta 14. aldar. Veraldlegar samtíðarsögur hafa verið notaðar sem heimildir í sagnfræði en fáir hafa fengist við frásagnarhátt sagnanna og sjónarhorn.
Frásagnarháttur veraldlegra samtíðarsagna hefur stundum leitt menn til að halda fram þeirri skoðun að þær segðu hlutlægt og blátt áfram frá mannlífinu eins og það hafi verið. Engu síður hafa verið kveðnir upp þungir dómar yfir aldarfarinu á 13. öld með því að vitna í Sturlungu. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig sögurnar eru sagðar, hvernig viðhorfum til manna og málefna er komið á framfæri og hvaða sjónarmið koma þar fram.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Stjórnin
