Framhaldsskóli í þróun: ráðstefna um rannsóknir og nýbreytni í framhaldsskólum
Hvenær
22. september 2017 12:30 til 17:30
Hvar
Annað
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Nánar
Ráðstefnugjald: 2000 kr.
Fyrirlestrar á íslensku og ensku
Ráðstefnan verður haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð þann 22. september nk. (2017) kl. 12:30–17:30. Á ráðstefnunni verður Kalle Nieminen, finnskur sérfræðingur á sviði nýsköpunar hjá finnska nýsköpunarsjóðnum með aðalfyrirlestur um nýbreytni í menntun og áskoranir framtíðar. Auk þess verða um 40 kynningar þar sem kennarar og rannsakendur segja frá nýbreytnistarfi og rannsóknum á framhaldsskólastarfi í málstofum.
Dagskrána má lesa í heild sinni á vef Skólaþróunar.
Að ráðstefnunni standa:
- Félag framhaldsskólakennara
- Félag stjórnenda í framhaldsskólum
- Skólameistarafélag Íslands
- Samtök áhugafólks um skólaþróun
- Námsbraut Háskóla Íslands um kennslufræði framhaldsskóla og háskóla
- Rannsóknastofa um þróun skólastarfs, rannsóknarhópur um starfshætti í framhaldsskólum
- Norræna öndvegissetrið Justice Through Education in the Nordic Countries (JustEd)
Nánari upplýsingar veitir Þuríður Jóhannsdóttir hjá Háskóla Íslands thuridur@hi.is og Baldur Gíslason hjá Skólastjórafélaginu smi.skrifstofa@gmail.com