Fræðsluerindi: Próteinmengjagreiningar á þorsklirfum.

Hvenær hefst þessi viðburður: 
26. nóvember 2009 - 12:20 to 13:00

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Hólmfríður Sveinsdóttir, sérfræðingur hjá Matís.

Heiti erindis: Próteinmengjagreiningar á þorsklirfum.

Hólmfríður varði doktorsritgerð sína við Háskóla Íslands í maí 2009. Í fyrirlestrinum verða kynntar niðurstöður doktorsverkefnisins sem ætlað var að skapa nýja þekkingu á próteintjáningu í þorsklirfum. Fylgst var með breytingum á próteinmengi þorsklirfa með auknum þroska og sem viðbrögð við meðhöndlun þeirra með próteinmeltu og bætibakteríum. Prótein, sem sýndu magnbreytingar eftir meðhöndlun þorsklirfa með próteinmeltu og bætibakteríum, voru aðgreind á tvívíðum SDS-PAGE rafdráttargeljum og kennigreind með massagreiningum. Áhersla var lögð á greiningu próteina sem tengja má við vöxt, þroska, meltingu og ósérhæft ónæmissvar.

Niðurstöður rannsóknanna sem ritgerðin byggir á, eru fyrsta skrefið í uppbyggingu á gagnabanka fyrir próteinmengi þorsklirfa.

deila á facebook