Hvenær hefst þessi viðburður:
25. febrúar 2010 - 12:20 to 13:00

Fræðsluerindi á vegum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.
Fyrirlesari: Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Heiti erindis: Heilsa og þróun í Afríku sunnan Sahara.
Fjallað verður um alþjóðaheilsu (global health) og mikilvægi hugtaksins. Nokkur atriði alþjóðlegrar þróunaraðstoðar verða rakin og fjallað um ávinning hennar og ágalla. Rætt verður hvers vegna ekki hefur gengið betur. Lýst verður mannlífi og heilsufari í Afríku sunnan Sahara, einkum Malawi og Sierra Leone, og þróun helstu sjúkdóma þar. Störf starfsmanna í þróunaraðstoð verða nefnd og loks reynt að segja til um hvaða áherslur þróunarsamsvinnu skila einhverjum árangri.
