Fordómar og geðræn vandamál: Alþjóðleg viðhorfakönnun

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. nóvember 2009 - 13:00 to 16:00

Þann 3.nóvember næstkomandi verður haldið málþing þar sem fjallað verður um fordóma gagnvart einstaklingum með geðræn vandamál frá sjónarhorni félagsfræði, geðlæknisfræði og notenda. Megintilgangur málþingsins er að kynna niðurstöður úr alþjóðlegri könnun á viðhorfum almennings til geðrænna vandamála (Global stigma study). Könnunin var framkvæmd í fimmtán löndum, að Íslandi meðtöldu. Að rannsókninni hérlendis standa Sigrún Ólafsdóttir, lektor í félagsfræði við Boston University og Jón Gunnar Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Hugarafl, Geðlæknafélag Íslands, Félags- og Mannvísindadeild Háskóla Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands.

Dagskrá auglýst síðar

Allir velkomnir (aðgangur er ókeypis)

deila á facebook