
Óskar Sindri Gíslason doktorsnemi við Líf og umhverfisvísindadeild HÍ mun fjalla um kynhlutföll hjá fuglum í erindi föstudaginn 2012 (kl. 12:30-13:10).
Flutningur framandi lífvera og landnám grjótkrabba (Cancer irroratus) við Ísland (The transport of non-indegenous species and colonization of the Atlantic rock crab (Cancer irroratus) in Icelandic waters)
Landnám framandi tegunda er eitt af alvarlegustu umhverfis- og efnahagslegu vandamálum sem blasa við heimsbyggðinni í dag. Flutningur sjávarlífvera í kjölfestuvatni skipa er talin ein meginástæða þess. Á síðastliðnum árum hafa nokkrar tegundir sjávarlífvera numið land við Ísland, þar á meðal hinn norður-ameríski grjótkrabbi (Cancer irroratus). Farið verður yfir helstu flutningsleiðir sjávarlífvera auk þess sem greint verður frá landnámi grjótkrabbans hér við land.
Erindið er að hluta byggt á meistaraverkefni Sindra, sem hann vann í samstarfi við Jörund Svavarsson, Halldór P. Halldórsson í Sandgerði og Snæbjörn Pálsson.
Mynd af grjótkrabba er úr safni Líffræðistofnunar (höfundaréttur - copyright). Flerii myndir af Grjótkröbbum, á Flickr síðunni Sindrinn.
Föstudagsfyrirlestrar Líffræðistofnunar eru haldnir í stofu 130 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ og eru öllum opnir. Erindin eru flutt á íslensku, nema annað sé tekið fram.
Dagskrá vorsins má nálgast á vef Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.
English summary:
Oskar Sindri Gislason a Ph.D. student in Faculty of Life and environmental sciences presents a talk titled: The transport of non-indegenous species and colonization of the Atlantic rock crab (Cancer irroratus) in Icelandic waters.
Mobility and colonization of alien species is a threat to the environment. Marine animals with suitable larvae forms, can migrate in the ballast water of ships. Gislason has shown that Cancer irroratus has migrated to Iceland, and colonized multiple fjords and areas in the west of Iceland. The talks summarizes the migration routes of marine animals and the colonization of the Atlantic rock crab in Iceland.
The talk will be given in Icelandic. Full schedule of the Faculty of Life and environmental science talks for this semester are available. Most talks are in Icelandic, but those in English are highlighted.
