Fjölskyldumiðuð hjúkrunarmeðferð við andlegri vanlíðan á meðgöngu

Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. nóvember 2009 - 12:10 to 12:50

Fjölskyldumiðuð hjúkrunarmeðferð við andlegri vanlíðan á meðgöngu

Stefanía B. Arnardóttir hjúkrunarfræðingur MSc.

Á málstofu mun Stefanía fjalla um niðurstöður rannsóknar sinnar um fjölskyldumiðaða hjúkrunarmeðferð við andlegri vanlíðan á meðgöngu. Fjölskyldumiðuð hjúkrunarmeðferð er viðbót við hefðbundna meðgönguvernd og getur nýst verðandi foreldrum sem upplifa vanlíðan á meðgöngu. Hugmyndafræðilegur bakgrunnur meðferðarinnar byggir á hjúkrunarlíkani um fjölskyldumeðferð sem þróað hefur verið við háskólann í Calgary í Kanada og líkani um lífssýn á sjúkdóma (Illness Beliefs Model). Aðalinntak meðferðarinnar er að gera meðvitaða upplifun fjölskyldunnar á aðstæðum sínum og kalla fram styrkleika hennar til að auðvelda henni að takast á við heilbrigðisvanda sinn. Það er gert í samvinnu fjölskyldunnar og hjúkrunarfræðingsins. Hjúkrunarfræðingurinn þarf að tengjast lífssýn fjölskyldunnar, þar sem lífssýn hefur áhrif á heilbrigðisástand.

Málstofan er mánudaginn 2.nóvember kl. 12:10 – 12:50 í stofu 201, 2.hæð Eirbergi, Eiríksgötu 34

Allir velkomnir

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu RSH: rsh.hi.is eða á netfanginu helgagar@hi.is

deila á facebook