Fjölmiðlafríríkið Ísland! Opinn hádegisfundur Félags stjórnmálafræðinga

Hvenær hefst þessi viðburður: 
5. mars 2010 - 12:00 to 13:00

Félag stjórnmálafræðinga efnir til opins hádegisfundar í samstarfi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna. Fundurinn verður föstudaginn 5. mars í stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands.  Hann hefst kl. 12:00 og lýkur kl. 13:00.

Á fundinum verða ræddar hugmyndir um að gera Ísland að griðastað alþjóðlegrar fjölmiðlunar, fjórða valdið og tengsl frjálsrar fjölmiðlunar og lýðræðis. Kynnt verður tillaga til þingsályktunar um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi verndun tjáningar- og upplýsingafrelsis sem nú er í meðförum Alþingis.

Að loknum stuttum framsögum verða umræður og tekið verður við spurningum úr sal.

Eftirfarandi verða gestir í pallborði:
Birgitta Jónsdóttir, alþingismaður og 1. flutningsmaður þingsályktunartillögu.
Elva Björk Sverrisdóttir, varaformaður Blaðamannafélags Íslands.
Julian Assange, blaðamaður og stofnandi vefsíðunnar Wikileaks.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.

Fundarstjóri er Svavar Halldórsson, formaður félags stjórnmálafræðinga.

Allir velkomnir.

deila á facebook