Fjárstýring með bestun

Hvenær hefst þessi viðburður: 
12. febrúar 2010 - 15:00 to 16:00

Meistarafyrirlestur Baldvins Inga Sigurðssonar


Föstudaginn 12. febrúar nk. kl. 15:00 heldur Baldvin Ingi Sigurðsson fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði.  Verkefnið heitir Fjárstýring með bestun. Fyrirlesturinn verður fluttur í fjarfundastofu HÍ í kjallara Odda, vegna þess að Baldvin Ingi býr erlendis.

Verkefni Baldvins Inga fjallar um slembna og línulega bestun með sérstakri áherslu á bestun tengda fjárstýringu. Fjárstýring er mikilvægur þáttur í öllum fjármálafyrirtækjum, m.a. bönkum. Hún felur í sér að taka lán og fjárfesta lausu fé með það að markmiði að lágmarka kostnað. Bankar þurfa á hverjum tíma að hafa aðgang að fjármagni til að geta staðið við skuldbindingar og þurfa því að hafa varasjóði og greiðan aðgang að lánum.  Uppfylla þarf skilyrði um laust fé, hámarksupphæð getur verið á lánalínum og lánin geta borið mismunandi vexti. Einnig er hægt að fjárfesta fjármagni með mismunandi háum vöxtum.

Þróað var bæði línulegt og slembið bestunarlíkan til að nota við ákvörðunartöku við fjárstýringu. - Helstu niðurstöður voru þær að slembin bestun hentar betur en línuleg bestun  vegna þess að línuleg bestun getur ekki tekið tillit til óvissunnar sem er í fjárstýringu og verður því aldrei meira en nálgun að vandamálinu.

Leiðbeinendur Baldvins Inga voru þeir Páll Jensson, prófessor í iðnaðarverkfræði við HÍ, og Hersir Sigurgeirsson, lektor við hagfræðideild HÍ.
Fulltrúi deildar er Tómas Philip Rúnarsson, prófessor í iðnaðarverkfræði við HÍ.

deila á facebook