Félag íslenskra fræða

Hvenær hefst þessi viðburður: 
1. febrúar 2012 - 20:00

Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða, það fyrsta á þessu ári, verður haldið í Sögufélagshúsinu við Fischersund miðvikudagskvöldið 1. febrúar kl. 20. Allir velkomnir.

Stefán Pálsson: Fingrafar málvísindamannsins – Rasmus Kristján Rask: áhrif, arfleið og íslenska ð-ið

Danski tungumálasnillingurinn Rasmus Kristján Rask hafði mikil áhrif á mótun íslenskunnar ritmáls á fyrri hluta nítjándu aldar. Hann kom því til leiðar að bókstafurinn ‘ð’ var endurvakinn í ritmálinu, þótt íslenskir vinir hans hafi litið á það sem óþarfa sérvisku. Hvers vegna hélt Rask upp á þennan skringilega bókstaf? Hvernig má það vera að einn maður öðlist svo sterka stöðu í menningarlífi erlends samfélags að honum leyfist að setja sitt eigið fingrafar á sjálft stafróf þjóðarinnar? Og hver er munurinn á sögusýn Íslendinga og Dana á feril málvísindamannsins?

Stefán Pálsson er sagnfræðingur með BA-próf frá HÍ og MSc-gráðu frá Edinborgarháskóla á svíði vísinda- og tæknisögu. Hann starfar m.a. að ritun bókar um bókstafinn ‘ð’.

deila á facebook