
David Carr, prófessor emeritus í heimspeki menntunar við Edinborgarháskóla, flytur opinn fyrirlestur föstudaginn 24. september kl. 15.00-16.15 í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Í erindinu útfærir Carr kenningu sína um að það sem helst einkenni góða kennara séu tilteknar dygðir sem þeir búi yfir fremur en tæknileg þekking á kennslufræði eða kennsluaðferðum. Kennsla sé jafnframt í eðli sínu gildishlaðið starf umfram flest önnur.
David Carr, sem nýlega hefur látið af störfum sem prófessor við Háskólann í Edinborg, hefur um fjögurra áratuga skeið verið í fremsta flokki menntaheimspekinga í heiminum. Fræðilegur grundvöllur hans er ensk-amerísk rökgreiningarheimspeki með stoð í kenningum Aristótelesar, en hann hefur jafnframt mikla praktíska reynslu af leiðsögn kennara á vettvangi og verkefnavinnu með starfandi kennurum í Skotlandi. Viðfangsefni hans spanna sviðið frá skilgreiningu menntunar- og fagmennskuhugtaksins til kennslu um tilfinningar, siðferði og trúarbrögð – og um gildi myndlistar, leiklistar og bókmennta í skólastarfi.
Carr er mjög einarður en jafnframt umdeildur heimspekingur. Hann hefur verið afkastamikill höfundur. Meðal þekktustu verka hans eru Educating the Virtues (1991), Professionalism and Ethics in Teaching (2000) og Making Sense of Education (2003) og þrjú greinasöfn sem hann hefur ritstýrt og víða eru notuð: Education, Knowledge and Truth (1998), Virtue Ethics and Moral Education (1999) og Spirituality, Philosophy and Education (2003).
Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn og er aðgangur ókeypis
