Facebook - tæki eða truflun?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. febrúar 2012 - 12:10 to 13:00

Kennslumiðstöð Háskóla Íslands býður til hádegisspjalls um notkun Facebook í kennslu miðvikudaginn 7. febrúar, kl. 12:10 – 13:00, í Lögbergi stofu 204.  Sem innlegg í umræður mun Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í Stjórnmálafræðideild HÍ, segja frá því hvernig hún hefur notað Facebook í kennslu:

Kynnt er hvernig Facebook hefur verið notað sem tæki til að efla umræðu og stuðla að valdeflingu nemenda í stóru námskeiði á fyrsta ári. Bent á leiðir til að tengja nemendur við efni námskeiðs utan kennslustofunnar í gegnum samfélagsmiðla.

Hæfniviðmið:
Í lok hádegisspjallsins ættu þátttakendur að hafa:
•    Kynnst notkun Facebook til eflingar umræðu í háskólanámi.
•    Velt fyrir sér leiðum til að tengja nemendur við námsefni utan kennslustofunnar í gegnum samfélagsmiðla.

Stefna:
Í stefnu Háskóla Íslands 3011-2016 segir:
Mikilvægt er að allt fyrirkomulag náms við háskólann stuðli að góðri ástundun nemenda. Ennfremur segir þar ...að lögð verði áhersla á fjölbreytta kennsluhætti sem hvetja nemendur til virkrar þátttöku í náminu.

Fyrir hvern:
Allir háskólastarfsmenn eru velkomnir.

Skráning er óþörf.

deila á facebook