Evrópuvæðing á Íslandi: Getur Ísland haft áhrif á stefnumótun ESB og hvernig er stefnum Evrópusambandsins framfylgt á Íslandi?

10/09/2010 - 12:00
Háskólatorg
Stofa 103

Alþjóðamálastofnun og rannsóknarsetur um smáríki býður til hádegisfundar í HT 103, föstudaginn 10. september. Fundurinn er annar í fundaröðinni 'Evrópa: samræður við fræðimenn.' Fulla dagskrá fundaraðarinnar má nálgast á vef stofnunarinnar www.hi.is/ams eða á facebook síðu stofnunarinnar, sem allir eru hvattir til að gerast aðdáendur að.

Jóhanna Jónsdóttir hefur undanfarin ár stundað doktorsnám við Cambridge háskóla og mun doktorsvörn hennar fara fram 14. september næstkomandi. Erindi hennar mun fjalla um hvernig Ísland getur haft áhrif á stefnumótun ESB og hvernig stefnum ESB hefur verið framfylgt hér á landi.

deila á facebook