
Fundaröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
EVRÓPA – SAMRÆÐUR VIÐ FRÆÐIMENN
Föstudaginn 10. febrúar, Lögberg 101, frá kl. 12 til 13.
Evrópusambandið og afleiðingar arabíska vorsins
Jordi Vaquer i Fanés, forstöðumaður Barcelona Centre for International Affairs á Spáni, lítur yfir farinn veg ári eftir atburðina sem tengdir hafa verið við arabíska vorið. Sú bjartsýni sem ríkti innan ESB í kjölfarið hefur nú dofnað eftir kosningasigra flokka íslamista í Túnis, Egyptalandi og Marokkó. Ástandið er síður en svo stöðugt í Líbíu og Jemen og mótmælendur í Bahrein og Sýrlandi eru vægðarlaust beittir ofbeldi. Óvissan um framtíðina er því mikil á þessum slóðum. Ári eftir fall Mubaraks er Evrópusambandið enn að reyna að átta sig á þeim breytingum sem orðið hafa í arabaheiminum. Nú þarf að grípa tækifærið og endurskoða stefnu sambandsins til þess að geta tekist á við þessar nýju áskoranir.
