Einstaklingur og samfélag: Hvernig menning gerir frumkvæði og ábyrgð mögulega

Hvenær hefst þessi viðburður: 
28. september 2010 - 12:00 to 13:00

Dr. Helen Haste, gestaprófessor við Harvard háskóla , flytur erindið „Einstaklingur og samfélag: Hvernig menning gerir frumkvæði og ábyrgð mögulega“ þann 28. september næstkomandi við Háskóla Íslands. Erindið verður kl. 12-13 í stofu H101 í  Stakkahlíð (Menntavísindasviði). 

Þegar við skoðum einstaklinginn í menningarlegu samhengi beinum við athyglinni að stöðugu samspili hans og þeirrar menningar sem hann hrærist í. Þetta samspil kemur meðal annars fram í samræðum, frásögnum og myndlíkingum og hjálpar einstaklingum  að gera reynslu sína merkingarbæra. Í erindinu mun dr. Haste skoða hvernig líta megi á persónulegt frumkvæði og persónulega ábyrgð í siðferðilegum og samborgaralegum málefnum sem afurð samspils einstaklingins og þeirrar menningar sem hann býr við.

Dr. Helen Haste er breskur sálfræðingur og beinist rannsóknaráhugi hennar að siðferðilegum, félagslegum og pólitískum gildum og borgarvitund fólks. Einnig beinist áhugi hennar að tengslum vísinda og samfélags, einkum fjölmiðlunar og ímyndar vísinda.  Kynjafræðilegt sjónarhorn er jafnframt þema í rannsóknum hennar.  Dr. Haste er mikilsvirt fræðikona og hefur birt fjölda fræðigreina í virtum tímaritum. Starfsævi sinni hefur hún að mestu varið við University of Bath, Englandi og varð á síðastliðnu ári emeritus prófessor í sálfræði við skólann. Auk þess að vera gestaprófessor við Harvard University í Bandaríkjunum er hún gestaprófessor við University of Exeter,  Englandi. Árið 2005 hlaut hún viðurkenningu „International Society of Political Psychology“, svonefndan „Nevitt Sanford Award“, fyrir framlag sitt til stjórnmálalegrar sálfræði. Ári síðar var hún kosin „Fellow of the Academy for Social Sciences“ í Bretlandi.

Erindið er á vegum námsbrautarinnar: Sálfræði í uppeldis- og menntavísindum við Uppeldis- og menntunarfræðideild Menntavísindasviðs og rannsóknasetursins Lífshættir barna og ungmenna http://www.rlbu.hi.is/  

Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn og er aðgangur ókeypis.

 

 

deila á facebook