Dr. Enrique del Acebo Ibáñez: Örsagan sem tjáningarform samtímans

Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2009 - 16:00 to 17:00

Argentínski félagsfræðingurinn dr. Enrique del Acebo Ibáñez: Örsagan (s. el micro-relato) sem tjáningarform samtímans

Miðvikudaginn 11. nóvember, kl. 16.00 Háskóli Íslands, Gimli, stofa 102

Örsögur Enrique del Acebo Ibáñez glæða þetta sívinsæla bókmenntaform nýju lífi. Hann nýtir sér áratuga langa reynslu sem fræðimaður á sviði félagsfræði til að bregða upp örstuttum, áleitnum myndum af hversdagslegum veruleika samtímans. Í fyrirlestri sínum fjallar hann um örsagnaformið sem tjáningarform samtímans þar sem óreiða, hraði og umskipti móta skilning einstaklingsins á umhverfi sínu.

Dr. Enrique del Acebo Ibáñez hefur sent frá sér fjölda bóka og greina á sviði félagsfræði. Hann hefur enn fremur haldið málverkasýningar, gert stuttmyndir og örsagnasöfnin Brevario (Micro-Cuentos) og Breves Encuentros (en ciento once relatos) komu út eftir hann í Buenos Aires, árið 2008.

Fyrirlesturinn er í boði Cervantes-seturs og spænskudeildar Háskóla Íslands í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum málum.

Fyrirlesturinn verður haldinn á spænsku og er öllum opinn!

deila á facebook