
Fimmtudaginn 18. febrúar heldur Diana Wallis, varaforseti Evrópuþingsins, erindi á vegum Alþjóðamálastofnunnar kl. 12 í sal 132 í Öskju. Wallis fjallar um Icesave, Ísland og Evrópusambandið.
Fundurinn fer fram á ensku og allir eru velkomnir.
Diana Wallis hefur setið á Evrópuþinginu frá því árið 1999 og verið varaforseti þingsins frá því í desember 2006. Wallis hefur lengi haft mikinn áhuga á málefnum Norðurlandanna og var kosin forseti fastanefndar Evrópuþingsins gagnvart Íslandi, Noregi og Sviss í september 2004. Þá var hún einnig kosin forseti sameiginlegu EES þingnefndarinnar í september 2004 og þeirri stöðu gegndi hún í þrjú ár. Wallis skrifaði bókina ,,Forgotten Enlargement: Future EU Relations with Iceland, Switzerland and Norway" ásamt Stewart Arnold and Ben Idris Jones. Bókin seldist mjög vel og var endurútgefin í október 2004. Wallis hefur verið fulltrúi Evrópuþingsins á fundum Norðurlandaráðsins, þingmannaráðs landa við eystrasalt (the Baltic Sea Parliamentarians Conference), og fastanefnd þingmanna í Norðurskautslöndum.
