Dagur ungra fræðimanna

Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. nóvember 2009 - 13:00 to 16:00

Ár hvert standa Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir viðburði sem nefndur er Dagur ungra fræðimanna.

Tilgangur þessa er að skapa vettvang fyrir unga fræðimenn að kynna rannsóknir sínar á sviði Evrópufræða.

Meistara- eða doktorsnemar, nýútskrifaðir eða þeir sem eru um það bil að útskrifast kynna rannsóknir sínar í stuttum fyrirlestrum og svara fyrirspurnum í lok ráðstefnunnar.

Við flautum nú til leiks fjórða sinni föstudaginn 20. nóvember frá kl. 13 til 16 í sal 132 í Öskju.

Að þessu sinni eru þátttakendur frá tveimur háskólum og fjórum fræðasviðum s.s. Evrópufræði, alþjóðasamskipti, lögfræði og stjórnsýslufræði. Umfjöllunarefnin innan þessa ramma eru margvísleg eins og sjá má á hér fyrir neðan: Hversu Evrópuvædd eru íslensk sveitarfélög?

Jóhanna Logadóttir, meistaranemi í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands með áherslu á Evrópufræði Rétturinn til aðgangs að gögnum hjá Evrópusambandinu

Vigdís Eva Líndal, lögfræðingur Stefnur og stofnanir upplýsinga- og þekkingarsamfélagsins í ESB-löndunum og Íslandi

Bergljót Gunnlaugsdóttir, MA í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst, forstöðumaður bókasafns Flensborgarskóla Vestræn samvinna og öryggis- og varnarmálastefna ESB

Vilborg Ása Guðjónsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands Evrópuvæðing utanríkis-, öryggis- og varnarmála

Margrét Cela, doktorsnemi í alþjóðasamskiptum við Háskólann í Lapplandi

Fundarstjóri er Högni S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.

Við hvetjum alla áhugamenn um alþjóðamál og málefni Evrópusambandsins sérstaklega til að mæta.

Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

deila á facebook