
Jafnréttisdagar 2010 í Háskóla Íslands
Dagana 20.-24. september fara Jafnréttisdagar í Háskóla Íslands fram annað árið í röð. Líkt og í fyrra kennir ýmissa grasa og dagskráin verður afar fjölbreytt en fjallað verður um jafnrétti í víðum skilningi út frá mismunandi sjónarhornum. Að dögunum standa fjölmargir aðilar innan Háskólans sem tengjast jafnréttismálum, rannsóknastofnanir, námsbrautir, ýmis hagsmunafélög nemenda, jafnréttisnefndir innan skólans og fleiri aðilar, auk aðila utan skólans.
Opnunarviðburðurinn verður umræðufundur um karlmennskuímyndir og kynhneigðir þar sem þeir Páll Óskar Hjálmtýsson og Ingólfur V. Gíslason munu flytja erindi. Á Jafnréttisdögum er einnig fjallað um klámvæðingu, einelti, fjölmenningu og fólksflutninga, kvennabaráttu á Íslandi fyrr og nú og táknmál sem fyrsta tungumál, svo fátt eitt sé nefnt. Þá verða kvikmyndasýningar í samstarfi við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF), leiksýningar, listviðburðir og ýmislegt fleira. Viðburðir fara ýmist fram á íslensku eða ensku. Meðan á Jafnréttisdögum stendur mun Háma á Háskólatorgi bjóða upp á alþjóðlegan matseðil og tilboð verður á völdum bókum sem fjalla um jafnréttismál í Bóksölu Stúdenta.
Markmiðið með Jafnréttisdögum er að stuðla að fræðslu og aukinni umræðu og skilningi á jafnréttismálum, innan sem utan háskólasamfélagsins, og stuðla að því að gera jafnréttismál sýnilegri. Ókeypis er á alla viðburði Jafnréttisdaga (utan kvikmyndasýninga á vegum RIFF) og aðgangur er öllum heimill.
Hægt er að fá táknmálstúlkun á viðburðum Jafnréttisdaga og er sú þjónusta endurgjaldslaus. Hafa þarf samband við Sigrúnu Eddu Theódórsdóttur (netfang: set1@hi.is, sms: 861 2626, msn myndsími: hitulkur@hotmail.com) til að panta þjónustuna með a.m.k. 5 daga fyrirvara.
Bæklingur jafnréttisdaga (.pdf)
Dagskrá jafnréttisdaga (.pdf)
Mánudagur 20. sept.
Tár, bros og testósterón: Erindi og umræður um karlmennskuímyndir og gagnkynhneigðarhyggju
Íslenska
12-13.50 : Háskólatorg 102
Ingólfur V. Gíslason dósent í félagsfræði & Páll Óskar Hjálmtýsson
Umræður: Fyrirlesarar ásamt G. Smára Veigarssyni, Pétri Georg Markan & Uglu Stefaníu Jónsdóttur.
Fundarstjóri: Sólveig Anna Bóasdóttir dósent í siðfræði
Q – félag hinsegin stúdenta & Starfshópur um jafnréttisdaga
Umræða um einelti í Háskóla Íslands
Íslenska
14.15-16.30: 102 Háskólatorg
Stúdentaráð HÍ
Kvöldstund með rauðsokkum
Íslenska
20: Faktorý, Smiðjustíg 6
Gerður Óskarsdóttir, Helga Ólafsdóttir, Lilja Ólafsdóttir & Rannveig Jónsdóttir
Meðlimir úr Rauðsokkahreyfingunni ræða við Fríðu Rós Valdimarsdóttur um reynslu sína og upplifun af jafnréttisbaráttunni
Kynnir: Halla Tryggvadóttir, formaður jafnréttisnefndar SHÍ
Starfshópur um Jafnréttisdaga
Þriðjudagur 21. sept.
Mansal barna í Gíneu Bissá
Íslenska
12-13: Árnagarði 311
Jónína Einarsdóttir prófessor í mannfræði við HÍ
Fundarstjóri er Sveinn Eggertsson, formaður námsbrautar í mannfræði við HÍ
Jónína Einarsdóttir fjallar um verkefni um börn og mansal í Gínea-Bissau
Jónína mun kynna niðurstöður rannsóknar sem gerð var að frumkvæði Unicef í Gíneu-Bissá og UNICEF á Íslandi um mansal barna i Gíneu-Bissá. Á hverju ári fer fjöldi barna, mest drengir, frá Gíneu-Bissá til Senegal og Gambíu til að stunda nám í Kóranskólum. Rannsóknin leitast við að afla upplýsinga um ástæður, umfang og afleiðingar þessa og hvort um eiginlegt mansal barna sé að ræða. Auk þess beindist rannsóknin að öllum þeim aðstæðum sem hugsanlega mætti flokka sem mansal barna í landinu og með hvaða hætti mætti tryggja réttindi barna.
Námsbraut í mannfræði, Félags- og mannvísindadeild HÍ & UNICEF
Gender & Education in occupied territories / Stúdentar í stríðshrjáðum löndum
English
13-14: Askja, N-129
Anna Tómasdóttir, hjúkrunarfræðingur
Jafnréttisnefnd SHÍ
Multiculturality, Migration and Racism / Fjölmenning, fólksflutningar og fordómar
English
14.15-15.45: University Square 104 / Háskólatorg 104
Anh-Dao Tran, Marco Solimene & Margrét Guðlaugsdóttir.
Fundarstjóri: Unnur Dís Skaptadóttir
Umræður: Fyrirlesarar ásamt Þórdísi Nadiu Semichat og Hjálmari G. Sigmarssyni, sérfræðingi hjá Jafnréttisstofu.
Rannsóknasetur um fólksflutninga og fjölmenningu & Starfshópur um Jafnréttisdaga
SÝNINGU FRESTAÐ Þyrnirós gerir uppreisn – Hinsegin fjölskylduleikrit
Íslenska
17.00: Þjóðarbókhlaða, 2. hæð
Höfundur: Freddy Martinsdottir Hesselmann
Hönnun: Marc Haarmann
Byggt á hugmynd eftir höfund, Lore Cubero-Lopez & Ruth Scherer
Starfshópur um jafnréttisdaga & Skyn – félag nemenda með sértæka og falda námsörðugleika
Miðvikudagur 22. sept.
Jafnrétti í sögu Aðalbyggingar
Íslenska
10-10.30: Aðalbygging, Upplýsingaskrifstofa (1. hæð)
Magnús Guðmundsson, skjalavörður og sagnfræðingur
Magnús Guðmundsson skjalavörður fjallar um sögu Aðalbyggingar HÍ m.t.t. til jafnréttis- og aðgengismála
Starfshópur um Jafnréttisdaga
Hinsegin hugtakasmiðja
Íslenska
11.40-12.20: HT 101
Q – félag hinsegin stúdenta
Tónleikar Táknmálskórsins
Táknmál
12.30: Háskólatorgi
Kórstjóri: Eyrún Ólafsdóttir
Starfshópur um Jafnréttisdaga
Táknmál sem fyrsta mál
Táknmál og tal
13.00-14.30: Háskólatorg 300
Fjallað verður um táknmál sem fyrsta mál frá ólíkum sjónarhornum, lagalega, fræðilega og frá sjónarhóli notenda.
Hjördís Anna Haraldsdóttir Verkefnistjóri á táknmálssviði Hlíðaskóla: Hvers vegna á að lögbinda táknmálið?
Rannveig Sverrisdóttir lektor í táknmálsfræðum: Fyrsta mál - Móðurmál
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
Steinunn L. Þorvaldsdóttir nemi í diplómanámi í safnafræði og stundakennari í táknmálsfræði.
Fundarstjóri: Sigrún Edda Theódórsdóttir, táknmálstúlkur HÍ
Námsbraut í táknmálsfræðum & Starfshópur um Jafnréttisdaga
The island of Iceland: Isolation or integration? / Eyjan Ísland: Einangrun eða aðlögun?
English
15-17: Háskólatorg 300 / University Square 300
Talks and discussions focusing on the possibilities and challenges in the life of international students
Alþjóðaskrifstofa HÍ og ESN Reykjavík
A Dreaming Seashell Conversation / Draumasamtal við Skelina – Freddy fer á hestbak
20.00: Location to be announced / Staðsetning auglýst síðar
Freddy Martinsdóttir Hesselmann & Hestbak
Experimental music-painting performance / Tónleikar og myndlist unnið samhliða
Skyn – félag nemenda með sértæka og falda námsörðugleika
ESN International Students Evening / Skemmtikvöld erlendra stúdenta
21.00: Barbara, Laugavegi 22
ESN
An evening organized by ESN Reykjavík for international students
Fimmtudagur 23. sept.
Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða í háskólastarfi/Gender mainstreaming in academia
Íslenska
11.00-12.00: Stakkahlíð, H-101
Kynnt verður tilraunaverkefni Jafnréttisnefndar Félagsvísindasviðs og
námsbrautar í hagnýtri jafnréttisfræði. Verkefnið felst í að nemendur læra
um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða og spreyta sig á að samþætta
á Félagsvísindasviði. Hinni bóklegu þekkingu er því breytt í hagnýta
þekkingu strax í náminu og innan veggja skólans.
Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði og deildarforseti Stjórnmálafræðideildar. Námsbraut í hagnýtri jafnréttisfræði og Jafnréttisnefnd Félagsvísindasviðs.
Þarf fyrsta árið í háskóla að vera helvíti? – Kynningarfundur um starf Maníu – Geðverndarfélags innan HÍ / Does the first year in university have to be hell? – Manía – an introductory meeting
Íslenska
11.35-13.00: Háskólatorg
Eva Hrönn Árelíusdóttir, Klára Ósk Hallgrímsdóttir, Ragnheiður J. Sverrisdóttir & Þórey Guðmundsdóttir
Starf félagsins kynnt og félagsfólk segir frá reynslu sinni af því að hefja nám í háskóla
Manía
RABB Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum – „Við erum með aðeins viðkvæmari heila.“ Tengsl hins líffræðilega og sálfélagslega í orðræðu geðlækna um konur, kyn og þunglyndi
Íslenska
12.25-13.15: Askja N-132
Arnþrúður Ingólfsdóttir
Þau okkar sem ólust upp á blómaskeiði Prozac þunglyndislyfsins eru kynslóðin sem hefur lært að sjá þunglyndi sem kyn-hlutlausa heilaröskun sem hægt er að lækna með lyfjum. Tvöfalt tíðara þunglyndi kvenna bendir þó til þess að samspil líffræðilegra og sálfélagslegra orsaka liggi að baki, þar með talið áhrif misréttis og ofbeldis. En þurfa þessar skýringar að vera í andstöðu? Í fyrirlestrinum verða viðtöl við geðlækna Landsspítalans greind út frá s.k. new materialist kenningum taugasálfræðingsins Elizabeth Wilson í feminískum fræðum, um gagnkvæm áhrifatengsl líffræði og menningar.
RIKK – Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ
FRESTAÐ - Jafnrétti til náms – Réttur og raunveruleiki fatlaðra nemenda við Háskóla Íslands
Sjá neðar á síðunni undir liðnum Viðburðir utan dagskrár
Rosie rocks the castle – a slightly different Sleeping Beauty performance for the whole family / Þyrnirós gerir uppreisn – Hinsegin fjölskylduleikrit
English
National Library, 2nd floor / 17.00: Þjóðarbókhlaða, 2. hæð
By Freddy Martinsdottir Hesselmann
Design / Hönnun: Marc Haarmann
Based on idea by author, Lore Cubero-Lopez & Ruth Scherer / Byggt á hugmynd eftir höfund, Lore Cubero-Lopez & Ruth Scherer
Starfshópur um Jafnréttisdaga og Skyn
Aðalfundur Femínistafélags Háskóla Íslands
Íslenska
20.30: Næsti Bar
Gyða Margrét Pétursdóttir flytur erindi í upphafi fundar
Femínistafélag HÍ
Föstudagur 24. sept.
Konur og karlar í fjölmiðlum: Ísland í alþjóðlegri fjölmiðlavöktun
Íslenska
12.00-13.00: Gimli 102
Kynnt verður verkefnið GMMP (Global Media Monitoring Project) sem er
alþjóðleg fjölmiðlavöktun. Hún er framkvæmd á fimm ára fresti og árið
2009 tók Ísland í fyrsta sinn fullan þátt í vöktuninni.
Eygló Árnadóttir, Valgerður Anna Jóhannsdóttir og Þorgerður Einarsdóttir
Námsbraut í blaða- og fréttamennsku og námsbraut í kynjafræði.
Allt sem þú vildir ekki vita... um klámvæðingu: Opinn umræðufundur
Íslenska
14.00-15.30: Aðalbygging, Hátíðarsalur
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, menntunarfræðingur og prófessor við HÍ og HA – Klám, kvenfyrirlitning, karlfyrirlitning
Katrín Anna Guðmundsdóttir, jafnréttishönnuður og stundakennari í kynjafræði
Fundarstjóri: Ólafur Páll Jónsson, dósent í heimspeki á Menntavísindasviði
Fjallað verður um eðli klámvæðingar, hvernig hún birtist sem fyrirbæri og viðhorf almennings til klámvæðingar. Skiptar skoðanir eru um klámvæðingu og mun Katrín fjalla um þrenns konar nálgarnir fólks gagnvart henni, ásamt því að útskýra hugtakið klámvæðingu, hvernig hún birtist og hvaða áhrif hún hefur á jafnrétti kynjanna
Jafnréttisnefndir HÍ, SHÍ og fræðasviða
Lokahóf Jafnréttisdaga – Uppistand
Íslenska
21.00 (húsið opnar): Faktorý, Smiðjustíg 6
Uppistöðufélagið skemmtir: Elsa María Jakobsdóttir, Íris Ellenberger, Saga Garðarsdóttir & Þórdís Nadia Semichat
Starfshópur um Jafnréttisdaga
Viðburðir utan dagskrár
Ástir og átök. Kvennabaráttan þá og nú.
1. október kl. 14.00-16.00. Stofa 132, Askja.
Íslenska
Málþing með þátttöku fræðimanna og aðgerðasinna.
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi.
Jafnrétti til náms – Réttur og raunveruleiki fatlaðra nemenda við Háskóla Íslands
5. nóvember kl. 14-16. Hátíðarsal, Aðalbyggingu HÍ
Íslenska
Guðrún Linda Björgvinsdóttir meistaranemi í fötlunarfræði, Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent í fötlunarfræðum við HÍ, Helga Baldvins og Bjargardóttir, meistaranemi í fötlunarfræði, Laufey Löve, doktorsnemi í fötlunarfræði, & Knútur Birgisson, meistaranemi í fötlunarfræði,
Pallborð: Freyja Haraldsdóttir, Eva Þórdís Ebenesardóttir, Guðmundur Magnússon formaður Öryrkjabandalags Íslands, Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, og Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands.
Kynntar verða niðurstöður nýs rannsóknaverkefnis um stöðu og mannréttindavernd fatlaðra nemenda við HÍ.
Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og ráð um málefni fatlaðs fólks
Kvikmyndasýningar í samstarfi við RIFF – Reykjavík International Film Festival / Film screenings in co-operation with RIFF
28. september
English
12.00: Nordic House / Norræna Húsinu
Symposium on the film Fake Orgasm with Jo Sol, director of the film / Málþing um kvikmyndina Falskar fullnægingar með þátttöku Jo Sol, leikstjóra myndarinnar
Sýningar / Screenings
Staður og tími auglýst síðar
Bara strákar (All Boys)
Fölsuð fullnæging (Fake Orgasm)
Gæfa (Good Fortune)
Monica og David (Monica and David)
Stelpur í uppistandi / Stand Up Girls
