Breytt framsetning reikningsskila. Einar Guðbjartsson dósent.

Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Breytt framsetning reikningsskila

(Financial Statement Presentation)

Alþjóðlega reikningsskilaráðið (IASB/IFRS) og Bandaríska reikningsskilaráðið (FASB) hafa í um áratuga skeið haft með sér samvinnu um sameiningu og gerð sameiginlegra reikningsskilastaðla (A road map for convergence between IFRS and U.S. GAPP). Í apríl 2004 var eitt af þessu undirverkefnum sett í gang og unnið hefur verið að framgangi þess síðan, en verkefninu er ætlað að komast að sameiginlegri niðurstöðu um framsetningu reikningsskila (A Project of Financial Statement Presentation) sem nota á bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum. Með framsetningu reikningsskila hér er átt við framsetningu innihalds ársreiknings sem nær til efnahagsreiknings, rekstrarreiknings, eigin fjár og sjóðstreymis. Samhliða þessari samhæfingu breytast ákveðin hugtök reikningsskilanna.

Fyrirlesturinn mun fjalla um hina nýju framsetningu reikningsskilanna og  nýju hugtökin er tengjast breytingunni .

Einar Guðbjartsson er dósent og forstöðumaður meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun í viðskiptafræðideild.

 

deila á facebook