Brautskráning frá Háskóla Íslands

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. febrúar 2010 - 13:00

Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói, laugardaginn 27. febrúar nk. kl. 13.00.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að koma ekki síðar en kl. 12.15. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.
 
Prófskírteini verða afhent í röð eftir sviðum: Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Kandídatar fá heimsend bréf með nánari upplýsingum.

Nánari upplýsingar um brautskáninguna

 

deila á facebook