Börn, feður og fjölskyldutengsl - þrælkun, þroski, þrá

Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. október 2011 - 11:40 to 13:10

Í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands og 30 ára kennsluafmæli félagsráðgjafardeildar fléttar félagsráðgjafardeild saman fyrirlestri og ljósmyndum um börn, vinnu og feður. Fundarstjóri er Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf.

11:40-12:00 Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands fjallar um tilurð ljósmynda Guðbjarts Ásgeirssonar og leiðir gesti í gengum ljósmyndasýninguna Þrælkun, þroski og þrá. Sýningin fjallar um börn við vinnu á sjó og í landi. Hún vekur upp spurningar um vinnumenningu og barnauppeldi á Íslandi á 20. öld. Ljósmyndunum er ætlað að opna umræðu og hvetja fólk til að skoða fortíðina í nýju samhengi. Þær vekja upp spurningar er varða viðhorf til barnavinnu, aðbúnað og vinnuskilyrði barna og samskipti sjómanna og barna.

12:00-12:30 Anni G Haugen lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands fjallar um feður í barnavernd.

12:30-13:10 Pallborðsumræður; Ingólfur V. Gíslason dósent í félagsfræði, Páll Ólafsson félagsráðgjafi, Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur og aðjúnkt og Anni G Haugen lektor

deila á facebook