Skip to main content

Bioblitz í Elliðaárdal - Skordýr og aðrar pöddur

Bioblitz í Elliðaárdal - Skordýr og aðrar pöddur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. júlí 2017 11:00 til 13:00
Hvar 

Annars staðar

Rafstöðvarvegur, Elliðaárdal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í sumar hafa Reykjavíkurborg og Háskóli Íslands slegið höndum saman og stofnað til sérstaks fræðsluverkefnis um lífríki borgarinnar sem heitir Lífveruleit / Bioblitz í Reykjavík. Bioblitz er alþjóðlega þekkt hugtak sem felur í sér þátttöku og samstarf almennings og sérfræðinga með það að markmiði að finna, greina og skrá tegundir dýra, plantna og annarra lífvera á tilteknum svæðum. Þannig safnast gagnlegar og áhugaverðar upplýsingar um útbreiðslu og fjölbreytni líffræðilegrar fjölbreytni en einnig gefst tækifæri fyrir almenning að uppgötva og læra að þekkja lífríkið í sínu nánasta umhverfi.

Fyrst um sinn verður Elliðaárdalurinn í aðalhlutverki og í sumar verður því boðið upp á sérstaka fræðsluviðburði í Elliðaárdal. Sérfræðingar munu leiða viðburðina, veita fróðleik og aðstoða þátttakendur við að finna og greina tegundir og skrá þær. Viðburðirnir verða þrír og mun hver viðburður einblína á tiltekinn lífveruhóp – fyrst plöntur, þá fugla og loks skordýr og önnur smádýr.

Þriðji og seinasti viðburðurinn verður sunnudaginn 23. júlí kl 11. Hist verður við Rafstöðina í Elliðaárdal nálægt nýju hjóla- og göngubrúnni yfir Elliðaárnar. Skordýrum og öðrum smádýrum verður safnað og þau skoðuð og greind eftir bestu getu en mikil tegundafjölbreytni er á þessu svæði.

Opnuð hefur verið sérstök vefsíða á slóðinni www.reykjavikbioblitz.is þar sem þátttakendur geta skráð þær tegundir sem á vegi þeirra verða, skráð staðsetningu og sett inn og skoðað ljósmyndir. Tegundirnar eru flokkaðar í helstu lífveruhópa svo sem plöntur, fugla, spendýr, skordýr o.s.f.v. Vefsíðan er upplögð fyrir áhugasama náttúru- og lífríkisunnendur og er tilvalin fyrir skólahópa til að vinna verkefni um lífverur í nærumhverfinu. Vefsíðan er notendavæn fyrir snjallsíma þ.a. hægt er að setja inn nýjar skráningar á vettvangi.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Bioblitz Reykjavík, www.reykjavikbioblitz.is og á Facebook-síðu verkefnisins.

Vertu með í lífveruleit!