Barnavernd: Skipulag, vinnsla og samstarf

Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. nóvember 2009 - 9:00 to 16:00


Í samstarfi við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og Barnaverndarstofu  


Námskeiðið er ætlað fagfólki sem vegna stöðu sinnar og starfa hefur afskipti af málefnum barna, svo sem starfsfólki skóla, heilsugæslu og löggæslu. Á námskeiðinu verður fjallað um hlutverk barnaverndar, uppbygging þjónustunnar og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Einnig verður gerð grein fyrir þeim málum sem barnaverndarnefndir hafa afskipti af, helstu úrræðum sem unnt er að grípa til og samstarfi barnaverndarnefnda við aðra sem koma að málefnum barna. Loks verður fjallað um þær breytingar sem eru að gerast í málaflokknum í dag.


Dagskrá námskeiðsins:
9:00 - 9:15 Kynning þátttakenda
9:15 - 10:00 Markmið og uppbygging barnaverndar - Anni G. Haugen
10:15 - 12:00 Hvers konar mál er barnavernd að takast á við og hver eru einkenni þeirra - Steinunn Bergmann
12:45 - 14:00 Hvað getur barnaverndin gert - Steinunn Bergmann
14:00 - 14:45 Samstarf barnaverndar við skóla, heilsugæslu og aðra sem sinna málefnum barna - Anni G. Haugen
15:00 - 15:30 Breytingar á krepputímum: fjölgun mála - Halldór S. Guðmundsson
15:30 - 16:00 Umræður og námskeiðslok

Umsjón og kennsla: Anni G. Haugen, lektor við HÍ. Auk hennar koma Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi og Halldór S. Gumundsson, lektor við HÍ að kennslunni.

Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands

deila á facebook