
Reiknilíkön fyrir göngumynstur loðnu við Íslandsstrendur.
Verkefnið er hluti af doktorsverkefni Baldvins og er unnið undir leiðsögn Björns Birnis við Kaliforníuháskóla og Svens Sigurðssonar við Háskóla Íslands.
Kynnt verður eindalíkan sem notað var til þess að framkalla gönguleið loðnunnar undanfarin ár. Skýrt verður frá gangi mála við greiningu á hegðan eindalíkansins og yfirstandandi vinnu við líkan sem lýsir innri orkubúskapi loðnunnar, þ.e. fituinnihaldi og hrognaþroska, Sú þróun á eftir að leiða af sér heildstætt líkan sem ætti nýtast til þess að spá fyrir um staðsetningu loðnu er hún gengur frá norðri til hrygningarslóða við suðurstrendurnar.
Málstofan hefst að vanda kl. 12:00 og fer fram í fundaherbergi hagfræðideildar á 3. hæð í Odda.
