Áskoranir Evrópusambandsins

03/02/2012 - 12:00
03/02/2012 - 13:00
Lögberg
Stofa 101

 

Fundaröð Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

EVRÓPA – SAMRÆÐUR VIÐ FRÆÐIMENN

Föstudaginn 3. febrúar, Lögberg 101, frá kl. 12 til 13.

Áskoranir EvrópusambandsinsAnna Jardfelt, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Svíþjóðar, heldur erindi um þær áskoranir sem Evrópusambandið stendur nú frammi fyrir. Hlutverk þess sem leiðandi afls í alþjóðasamfélaginu hefur veikst vegna fjármálakrísunnar og áskoranirnar eru engu síðri innan sambandsins. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir smærri ríki? Munu raddir þeirra heyrast innan sambandsins? Er raunhæft að ætla að Evrópusambandið muni áfram verða afgerandi á alþjóðasviðinu? Og ef ekki, eru þá aðrir kostir í stöðunni?

Anna Jardfelt var ráðin forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Svíþjóðar í ágúst 2010 en var áður í utanríkisþjónustu Svíþjóðar, síðast í Brussel. Þá hefur hún starfað fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE.  

 

deila á facebook