Ársfundur Stofnunar fræðasetra - Höfn í Hornafirði

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. september 2010 - 8:30

Ársfundur Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands verður haldinn í Nýheimum, Höfn í Hornafirði, mánudaginn 27. september.

Daginn eftir verður boðið upp á rútuferð til Reykjavíkur með viðkomu á völdum stöðum.

Við höfum tekið frá herbergi á Hótel Höfn og biðjum þá sem óska eftir gistingu vinsamlega að taka það sérstaklega fram við skráningu á ársfundinn.  

Flugfélagið Ernir flýgur til Hafnar í Hornafirði kl. 7.30 mánudaginn 27. september og aftur til Reykjavíkur kl. 17.30.  Þátttakendur eru beðnir um að sjá sjálfir um að bóka flug, hvort heldur þeir velja að fljúga aðra leiðina eða fram og til baka sama dag.

Vinsamlega staðfestið þátttöku eigi síðar en 20. september með pósti á netfangið astridur@hi.is eða í síma 525-4920.

Framtíðin í fámenni

Ársfundur Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands

27. september 2010

 Nýheimum, Höfn í Hornafirði

07:30

 

Flug frá Reykjavíkurflugvelli til Hafnar í Hornafirði

08:30

10:30

Höfn og Nýheimar skoðuð í fylgd Hjalta Þórs Vignissonar bæjarstjóra

10:30

11:00

Kaffi

11:00

11:15

Setning - Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands

11:15

12:15

Nýheimar -  árangur og framtíð – Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri

12:15

13:00

Hádegisverður

13:00

13:30

Fjölbreytileiki í dreifbýli – Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands

13:30

14.00

 

Tvísýnn heimur? Framtíð fræðaseturs í fámenni – Þorvarður Árnason forstöðumaður Háskólaseturs Hornafjarðar

14:00

14.30

Lítil byggð – lítil þekking?  Lára Magnúsardóttir forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands, Skagaströnd

14:30

15:00

Auðlegð öræfanna - fyrir ferðamennsku og útivist   – Anna Dóra Sæþórsdóttir, landfræðingur og dósent við Háskóla Íslands

15:00

15:30

Kaffi

15:30

16:00

Að nýta og njóta! Tvístefnan í íslenskri náttúrusýn – Unnur Birna Karlsdóttir, sagnfræðingur

16:00

16:30

Að starfa í þjóðgarði og búa í fámenni. Reynslusaga og framtíðarsýn.   – Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, sérfræðingur Náttúrustofu Norðausturlands

16:30

16:45

Samantekt og ráðstefnuslit – Rögnvaldur Ólafsson, forstöðumaður Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands

 

Fundarstjóri: Eyjólfur Guðmundsson skólameistari Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu

deila á facebook